Fyrirtækið
Loft og Raftæki ehf. tók
við innflutningi og sölu á vörum sem AVS Hagtæki hafði áður selt á
Íslandi frá árinu 1986.
Loft og Raftæki hefur það að markmiði að fylgja eftir þeim nýjungum,
tækniþekkingu og þjónustu sem áður hefur verið höfð hjá fyrirtækinu. Loft
og Raftæki hefur það að markmiði að fylgja eftir þeim nýjungum,
tækniþekkingu og þjónustu sem áður hefur verið höfð hjá fyrirtækinu. Það
er sérfræðiþekking í sjálfvirkni með loftstýritækni sem eykur
tæknivæðingu í íslenskum fyrirtækjum sem krefst þurrkunar og hreinsunar
þrýstiloftsins.
Árið 2007 byrjaði Loft og Raftæki ehf. að selja pípulagnir frá
Girpi. Loft og Raftæki er staðsett í Hjallabrekku 1 og er starfsfólk
okkar boðið og búið að aðstoða þig og þitt fyrirtæki á sem bestan hátt.