System´o neysluvatnslagnir fyrir heitt og kalt vatn
Heitt og kalt vatn þrýstingi(6 bar) upp að 80°C og 100°C við 0 bar.
PN 25 – þvermál frá 16 til 63.
PN 16 – þvermál frá 32 til 160.
Fljótlegt í uppsetningu og vinnusparandi.
Vottað af Nýsköpunarmiðstöð.
HTA® SYSTEM
NOTKUNARMÖGULEIKAR 1.1
GIRPI er hluti af alþjóðlegum hóp fyrirtækja sem starfa í mörgum löndum (Aliaxis).
GIRPI hefur hannað og þróað HTA kerfið til að leysa margs konar verkefni af hitastiginu 5° til 100°C, komið undir þrýstingi (sjá data sheet 1.7)
• Heitt og kalt vatn til heimilisnota
• Loftræstingarkerfi
• Sundlaugar
• Gróðurhús
• Hitaveitur
• Skipasmíðastöðvar
• Heilsulindir
SÝKINGAR VEGNA HERMANNAVEIKI
FORVARNIR ERU BESTA LAUSNIN
FORVARNIR GAGNVART HERMANNAVEIKI:
Hermannaveiki þróast undir ákveðnum skilyrðum. Hönnun á lagnakerfi og val efnis í lagnirnar eru áhrifamikið til þess að varna bakteríumyndun.
KERFI FRÁ GIRPI HTA AUÐVELDA VIÐHALD:
Framleitt úr hlutlausu og óvirku efni er GIRPI HTA kerfið algjörlega tæringarfrítt og tregðar mjög að sori (úrfellingar) myndist í rörum. Þar að auki er vegna eðlis efnsins mjög auðvelt að hreinsa út óhreinindi í rörunum með ætandi efnum án þess að skaða innra yfirborð.
Súrefni smígur ekki í gegnum efnið, það varnar myndun á úrfellingum sem stuðlar að og viðheldur bakteríugróðri í rörum.
ÚRFELLINGAR OG RYÐ ERU DRAUMAPARADÍS SÝKINGANNA, FYRIRBYGGJANDI AÐGERÐIR ERU BESTAR. TIL AÐ LÖGNIN SÉ ÖRUGG ÞARF AÐ:
- Góð hönnun
- Velja rétta efnið
- Vera með stöðugar fyrirbyggjandi aðgerðir
- Gott eftirlit: sýnataka, hreinsun og meðferð
EFNISÞOL:
HTA er með mjög gott viðnám gagnvart mörgum kemískum efnum. Samt sem áður þolar það ekki alla kemíkala. Farið ávalt eftir tækniupplýsingum og leitið álits hjá GIRPI svo að enginn vafi sé á að rétt sé á málum staðið.
HTA® SYSTEM
ÁVINNINGUR OG KOSTIR 1.2
HTA® TRYGGING GAGNVART TÆRINGU OG ÚRFELLINGU
HTA® kerfið frá GIRPI býður upp á lausnir á tæringarvandamálum. Framleiðslan samanstendur af heilstæðu kerfi röra, fittings og krana, sem henta vel fyrir heitt og kalt vatn í pípulagningakerfum.
HTA® er gerviefni sem hannar er til að standast tæringarvandamál í pípulögnum.
Ónæmi gagnvart kemikölum gerir allar ákvarðanatökur um hönnun kerfa einfaldari og minnkar vandamál af úrfellingum sem myndast seinna á líftíma kerfisins. Ennfremur er léttleiki og auðveld uppsetning kerfisins mjög hagkvæm fyrir verktaka (límingar í staðinn fyrir plastsuðu).
HTA® kerfið er viðurkennt af CSTB prófunarstöðunni í Frakklandi (ATEC) og er viðurkennt af vel flestum Evrópuþjóðum. LNE hefur viðurkennt HTA í brunastaðalinn BS1d0 og uppfyllir þar með staðla um eldþol.
HTA® er viðurkennt af Véritas Marine og þýska Lloyds. Ennfremur er HTA® viðurkennt af CRECEP til nota í almennum vatnsveitukerfum (A.C.S).
HTA® HAGKVÆMT, ENDINGARGOTT OG
AUÐVELT Í UPPSETNINGU
HTA® SYSTEM
ÁVINNINGUR OG KOSTIR
HTA® kerfið býður upp á marga kosti borið saman við hefðbundin efni:
? Tæringarþol: HTA® er þolið gagnvart raka og salti í andrúmsloftinu og tærandi vatnslausnum (svo sem mjög hreinsuðu vatni eða sýru). Vegna tæringarmótstöðu HTA efnisins þarf ekki að húða rörin eins og nauðsynlegt er þegar málmrör er notuð.
? Viðnám gegn úrfellingu: Vegna eðlis HTA efnisins verður minni úrfelling en í málmrörum.
? Matvælavænt: Nota má HTA efnin í kerfum þar sem matur til manneldis er meðhöndlaður. Franska heilbrigðisráðuneytið (brochure 1227) og viðurkennt fyrir matvælaiðnað af ACS by CRECEP.
- Eldvarnarstaðlar: HTA kerfin eru ekki eldfim. Þau eru flokkuð í B-S1-d0 af L.N.E. (reyklaus,